Fara í efni

Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 á Seltjarnarnesi

Seltirningar eru í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð hér heima á Nesinu því miðvikudaginn 12. ágúst nk. almyrkvi á sólu verður sýnilegur hér í allt að 1,08 mínútu. Sólmyrkvaferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir frá kl. 16:47 til 18:47.
Forsíðumynd: Sævar Helgi Bragason
Forsíðumynd: Sævar Helgi Bragason

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954 og er þetta er jafnframt fyrsti almyrkvinn sem sést frá höfuðborgarsvæðinu síðan 17. júní 1433. Næst kemur almyrkvi yfir Ísland þann 26. júní árið 2196, þá yfir Snæfellsnes og Vestfirði en ekki yfir höfuðborgarsvæðið aftur fyrr en 26. maí árið 2245.

Heima er best!

Seltirningar eiga því láni að fagna að vera í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð hér heima á Nesinu en almyrkvinn verður sýnilegur hvað lengst á Seltjarnarnesi af öllu höfuðborgarsvæðinu eða í allt að 1,08 mínútu og horfa skal í suð-vestur. Ferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir með deildarmyrkva í um klukkustund fyrir og eftir almyrkvann sjálfan. Seltjarnarnesbær hvetur íbúa til að njóta almyrkvans við heimili sín eða í göngufæri í nærumhverfinu og fara ekki í stutt erindi á bíl að nauðsynjalausu á meðan á atburðinum stendur. Með því má draga úr óþarfa umferð, létta álagi af innviðum og viðbragðsaðilum og stuðla að öruggri og ánægjulegri upplifun fyrir alla.

Sólmyrkvinn á Seltjarnarnesi - Smelltu til að skoða gagnvirkt kort

Nauðsynlegt að nota örugg sólmyrkvagleraugu

Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með almyrkvanum. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun sem vernda augun. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.
https://solmyrkvi2026.is/sogur/af-hverju-tharf-solmyrkvagleraugu-til-ad-sja-solmyrkva 

Sólmyrkvagleraugu fyrir leik- og grunnskólabörn í boði Seltjarnarnesbæjar

Til að börn á Seltjarnarnesi geti upplifað þennan einstaka atburð á öruggan hátt ætlar Seltjarnarnesbær gefa öllum börnum á leik- og grunnskólaaldri með lögheilmili á Seltjarnarnesi, örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun. Sólmyrkvagleraugun má nálgast í afgreiðsluna á Bókasafni Seltjarnarness næstu daga og eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að gera það tímanlega.

 

Götulokanir á Seltjarnarnesi í öryggisskyni frá kl. 15:00-19:00

Í ljósi þeirra forréttinda sem við Seltirningar búum við varðandi sýnileika almyrkvans hér á höfuðborgarsvæðinu, er viðbúið að fjöldi fólks geri sér ferð á Seltjarnarnesið til að upplifa þennan stórmerkilega atburð. Þó hann verði sýnilegur nær alls staðar á Seltjarnarnesinu má gera ráð fyrir að ferðamenn og íbúar sem vilja upplifa í sameiningu, safnist saman á golfvellinum, út við Gróttu, við strandlengjuna á Suðurströnd og á vestursvæðunum sem og á Valhúsahæð. 

Í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu verða tímabundnar götulokanir á Seltjarnarnesi frá kl. 15:00 - 19:00 þennan dag og mun Seltjarnarnesbær m.a. njóta liðsinnis Björgunarsveitarinnar Ársæls við þungalokanir. Gangandi og hjólandi vegfarendur njóta þannig forgangs auk þess sem Strætó mun ganga hefðbundna leið þrátt fyrir lokanir og Hopp hjól komast um Nesið m.a. frá aðgengilegum bílastæðum.

  • Suðurströndinni verður lokað í báðar átt frá innkeyrslunni að bílastæðinu við sundlaugina og út á golfvöll.
  • Norðurströndinni verður lokað frá gatnamótum við Lindarbraut og út að Gróttu.
  • Ekki verður hægt að keyra frá þvergötum inn á Suðurströnd og Norðurströnd á meðan.
  • Mögulegt verður að keyra frá Norðurströnd og Lindarbraut inn í hverfin sbr. á brautirnar og í Nesbala og sömu leið til baka.
  • Íbúar í Sævargörðum, Sefgörðum, Bygggörðum, Hrólfskálavör og Steinavör hafa fengið bréf frá Seltjarnarnesbæ inn um lúguna sína varðandi fyrirkomulag þurfi þeir að komast til síns heima á lokunartímanum.
  • Strætó mun keyra sína hefðbundnu leið um Seltjarnarnesið þrátt fyrir almenna götulokun. Tímaáætlun leiðar 11 er sú sama og á virkum degi en þó má gera ráð fyrir einhverjum röskunum þennan dag. 
  • Hopp rafskútustöðvar verða tímabundið settar upp á Eiðistorgi, við íþróttamiðstöðina, á bílastæðinu við bakkatjörn og nærri bílastæðinu við Gróttu.
  • Íbúar og aðrir gestir eru hvattir til að ganga og hjóla þangað sem það ætlar að horfa á almyrkvann verði það ekki frá heimilinu sem og er hægt að nýta sér strætó eða rafskútur hluta leiðarinnar.
  • Bent er á bílastæðin við Eiðistorg, Austurströnd, íþróttamiðstöðina og við skólahúsnæðin fyrir þá sem koma akandi inn á Seltjarnarnesið.
  • Fólk er hvatt til að kynna sér vel umferðartakmarkanir og virða leiðbeiningar og lokanir sem eru gerðar samkvæmt fyrirmælum lögreglu í öryggisskyni.
  • Lögreglubílar og sjúkraflutningabíll verður staðsettir á Seltjarnarnesi á meðan á lokununum stendur

Lokað út í Gróttu í öryggisskyni

Lokað verður út í Gróttu í öryggisskyni þann 12. ágúst skv. ábendingum Náttúruverndarstofnunar og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem flóð verður á þessum tíma.

Salernisaðstaða

Seltjarnarnesbær hefur gert ráðstafanir og verða þurrsalerni sett upp á fjórum stöðum á Seltjarnarnesi þ.e. við Valhúsahæð, við Snoppu, á bílastæðið við Bakkatjörn og á bílastæðið við golfvöllinn. Almenningssalerni eru auk þess á Eiðistorgi, á bókasafninu og í sundlauginni og við golfvöllinn.

Sjálfvirk götulýsing afvirkjuð - íbúar hvattir til að slökkva sín ljós

Búið er að gera ráð fyrir sólmyrkvanum í sjálfvirku götuljósastjórnkerfi (inteliLIGHT) á höfuðborgarsvæðinu sem þýðir að götuljósin munu ekki kveikja á sér á meðan á sólmyrkvanum stendur og því mun ljósmengun frá götuljósunum ekki trufla sýn. Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að slökkva á ljósum í sínu húsnæði til að takmarka ljósmengunina eins og kostur er og auka þannig upplifunina. 

Veitingasala á Vestursvæðunum

Ráðagerði og veitingastaður Nesklúbbsins verða með aukinn viðbúnað og veitingasölu á sínum svæðum sem tilvalið er að nýta sér. 

Veður og upplifun

Ekki er nauðsynlegt að himinninn sé alveg heiðskír til að fylgjast með sólmyrkvanum. Háskýjaslæða truflar ekki en meira ef það er rigning og þungbúið. Jafnvel þótt skyggni verði ekki fullkomið verður birtubreytingin sjálf einstök þegar myrkur skellur á í stutta stund. Samkvæmt upplýsingum frá Stjörnu-Sævari verður hápunktur sólmyrkva-ferlisins á Seltjarnarnesi, þegar myrkrið er að skella á, frá c.a. kl. 17.40-17:55 en almyrkvinn sjálfur frá u.þ.b. kl. 17:48 - 17.49.

Sérstakt spásvæði vegna sólmyrkvans - Vefsvæði Veðurstofunnar fyrir 12. ágúst 2026 þar sem nálgast má staðarspár fyrir almyrkvaslóðir sbr. hér á Seltjarnarnesi. Hægt er að skoða spá um skýjahulu á korti og fylgjast með nýjustu tilkynningum frá veðurvakt Veðurstofunnar.

Nákvæmar tímasetningar almyrkvans á Seltjarnarnesi

Sólmyrkvinn á Seltjarnarnesi - smelltu til að skoða gagnvirkt kort

Rauðu línurnar sýna götulokanir og gulu punktarnir lokun á þvergötum sem liggja inn á Suðurströndina og Norðurströndina.

Opinber upplýsingagátt á island.is og fræðslugátt Sævars Helga

Íbúar og gestir eru eindregið hvattir til að fylgjast með upplýsingum og fylgja leiðbeiningum frá Seltjarnarnesbæ, stjórnvöldum, lögreglu og viðbragðsaðilum þegar nær dregur. Nánari upplýsingar má finna á upplýsingagátt stjórnvalda um almyrkvann, og á fræðslugátt Sævars Helga Bragasonar um almyrkva á sólu árið 2026. Þar má finna mikið að gagnlegu fræðsluefni sem og gagnvirkt kort sem sýnir nákvæmlega hvar og hvenær myrkvinn sést með því að setja bendil á kortið. Þar kemur einnig fram í hvaða átt skal horfa. Sem dæmi er hægt að setja bendilinn á heimilið sitt og fá þá upp allar upplýsingar um tímalengd og hvar skal staðsetja sig til að vera ekki í skuggavarpi.


Upplýsingagátt stjórnvalda: https://island.is/v/almyrkvi-2026
Fræðslugátt Sævars Helga: https://solmyrkvi2026.is/almyrkvi-a-solu-2026


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?