31.07.2026
Sólmyrkvagleraugu í boði fyrir börn á Seltjarnarnesi
Á bókasafninu má nálgast örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu sem Seltjarnarnesbær ætlar að gefa leik- og grunnskólabörnum með lögheimili á Seltjarnarnesi til að þau geti upplifað þann einstaka atburð sem almyrkvinn er.
30.07.2026
Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 á Seltjarnarnesi
Seltirningar eru í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð hér heima á Nesinu því miðvikudaginn 12. ágúst nk. almyrkvi á sólu verður sýnilegur hér í allt að 1,08 mínútu. Sólmyrkvaferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir frá kl. 16:47 til 18:47.
29.07.2026
Lokun á Suðurströnd þann 30. júlí frá kl. 07-13.
Vegna malbiksviðgerðar við leikskólann þarf að loka hluta af Suðurströnd, fimmtudaginn 30. júlí frá kl. 07-13. Hjáleið verður framhjá sundlaug og heilsugæslu og um Kirkjubraut og Nesveg. Áætlanir Strætó gætu raskast og búast má við töfum af þessum orsökum. Fólk er beðið um að sýna þessu skilning.
28.07.2026
Biðskýli við Nesveg fjarlægt tímabundið
Vegna framkvæmda við lóðarvegg fyrir nýja leikskólann á horni Nesvegar og Suðurstrandar er óhjákvæmilegt annað en að taka niður biðskýli sem stendur við Nesveg andspænis Eiðistorgi. Skýlið fer niður þann 5. ágúst og verður sett upp aftur um leið og veggurinn hefur risið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki um það bil sex vikur og að strætisvagnar stoppi á sama stað og venjulega.
27.07.2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026
Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
27.07.2026
Starfsfólk í Skjólið Frístund óskast - hlutastörf
Frístundaheimilið Skjólið óskar eftir starfsfólki, 18 ára og eldri. Um er að ræða hlustastarf með börnum að skóla loknum, tvo til fimm eftirmiðdaga í viku (frá kl. 13:00-16:30). Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk.
15.07.2026
Lokun á Suðurströnd til austurs 20. - 24. júlí
Vegna tenginga lagna við nýjan leikskóla verður Suðurströnd einstefna til vesturs frá Nesvegi dagana 20. - 24. júlí, mánudag til föstudags. Akrein Suðurstrandar til austurs verður lokuð þessa daga en stefnt er að hafa opið til vesturs allan framkvæmdatímann.
Vegfarendum er bent á hjáleið upp hjá heilsugæslu og um Kirkjubraut. Áætlanir Strætó ættu ekki að raskast en búast má við einhverjum töfum af þessum orsökum. Hjáleiðir verða merktar en fólk er beðið að sýna þessu skilning.
02.07.2026
Ráðherra staðfestir stækkun friðlandsins við Gróttu
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði þann 1. júlí nýja friðlýsingaskilmála friðlandsins við Gróttu.
30.06.2026
Garðsláttur á Seltjarnarnesi sumarið 2026
Fjölbreytt fyrirkomulag þetta sumarið og þátttaka í verkefninu "Viljandi villt" í samstarfi við fleiri sveitarfélög á landinu.
26.06.2026
Bæjarstjórnarfundur 1. júlí 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1030. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 1. júlí 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.