Menntastefna Seltjarnarnesbæjar 2026-2030
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti á dögunum nýja menntastefnu bæjarins fyrir árin 2026-2030. Stefnunni er ætlað að leggja grunn að og styðja við farsælt og framsækið skóla- og frístundastarf. Áhersla er lögð á lærdómssamfélag í fremstu röð með framsækni, þróun, virðingu, vellíðan, þroska, hæfni og árangur nemenda að leiðarljósi. Stefnan er mótuð í víðtæku samráði við starfsfólk í leik- og grunnskólum, tónlistarskóla og frístunda- og félagsstarfi Seltjarnarnesbæjar sem og við forráðamenn, kjörna fulltrúa og aðra hagaðila. Til að fanga rödd nemenda var stuðst við niðurstöður Skólavogarinnar skólaárið 2024-2025, lýðræðisþing í Valhúsaskóla 2025 og skólaþing nemenda í Mýrarhúsaskóla 2025. Einnig var litið til skriflegra gagna frá Ungmennaráði Seltjarnarness og skýrslu náms- og starfsráðgjafa skólanna. Sérstaklega er stuðst við niðurstöður íbúaþings um skólamál sem haldið var vorið 2022 að frumkvæði Seltjarnarnesbæjar.
Við samþykkt stefnunnar í Skólanefnd voru Hildigunni Gunnarsdóttur færðar sérstakar þakkir fyrir gott starf við endurskoðun skólastefnunnar.
Menntastefnuna er að finna undir stefnur hér á heimasíðu bæjarins, en hún verður tekin til kynningar og eftirfylgni við byrjun komandi skólaárs.