Fara í efni

Sólmyrkvagleraugu í boði fyrir börn á Seltjarnarnesi

Á bókasafninu má nálgast örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu sem Seltjarnarnesbær ætlar að gefa leik- og grunnskólabörnum með lögheimili á Seltjarnarnesi til að þau geti upplifað þann einstaka atburð sem almyrkvinn er.

Sólmyrkvagleraugu fyrir leik- og grunnskólabörn í boði Seltjarnarnesbæjar

Til að börn á Seltjarnarnesi geti upplifað þennan einstaka atburð á öruggan hátt ætlar Seltjarnarnesbær gefa öllum börnum á leik- og grunnskólaaldri með lögheilmili á Seltjarnarnesi, örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun. Sólmyrkvagleraugun má nálgast í afgreiðslunni á Bókasafni Seltjarnarness næstu daga og eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að gera það tímanlega.

Nauðsynlegt að nota örugg sólmyrkvagleraugu

Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með almyrkvanum. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun sem vernda augun. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur. Nánari upplýsingar á fræðslugátt Sævars Helga en þar má einnig kaupa örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu sem og eru fleiri aðilar að selja sólmyrkvagleraugu og þá er mikilvægt að tryggja að þau séu örugg. 

Opinber upplýsingagátt á island.is og fræðslugátt Sævars Helga

Íbúar og gestir eru eindregið hvattir til að fylgjast með upplýsingum og fylgja leiðbeiningum frá Seltjarnarnesbæ er varðar nærumhverfið sem og upplýsingar frá stjórnvöldum, lögreglu og viðbragðsaðilum þegar nær dregur. Nánari upplýsingar má finna á upplýsingagátt stjórnvalda um almyrkvann, og á fræðslugátt Sævars Helga Bragasonar um almyrkva á sólu árið 2026. Þar má finna mikið að gagnlegu fræðsluefni sem og gagnvirkt kort sem sýnir nákvæmlega hvar og hvenær myrkvinn sést með því að setja bendil á kortið. Þar kemur einnig fram í hvaða átt skal horfa. Sem dæmi er hægt að setja bendilinn á heimilið sitt og fá þá upp allar upplýsingar um tímalengd og hvar skal staðsetja sig til að vera ekki í skuggavarpi.

Upplýsingagátt stjórnvalda: https://island.is/v/almyrkvi-2026
Fræðslugátt Sævars Helga: https://solmyrkvi2026.is/almyrkvi-a-solu-2026


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?