21.11.2026
Opinn íbúafundur um fjárhagsstöðu og fjárhagsáætlun 2027
Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 19:30 býðst bæjarbúum að taka þátt í opnum íbúafundi í Gallerí Gróttu á Bókasafni Seltjarnarness.
20.11.2026
Breytingar á nefndakerfi og stjórnsýslu taka gildi
Breytingarnar miða að því að einfalda stjórnsýslu Seltjarnarnesbæjar, sameina tengda málaflokka og stuðla að skilvirkari nýtingu tíma og fjármuna.
20.11.2026
Bæjarstjórnarfundur 25. nóvember 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1038. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 25. nóvember 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 5.
16.11.2026
Verum viðbúin - eflum viðbúnað heimilanna
Eigum nauðsynjar til þriggja daga, gerum einfalda heimilisáætlun og hugum að nágrönnum eru meðal hagnýtra upplýsinga í bæklingnum Verum viðbúin frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
13.11.2026
Tæknibilun Microsoft hefur áhrif á tölvupóstsamskipti
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá er víðtæk tæknibilun hjá Microsoft á heimsvísu og forritin á þeirra vegum liggja niðri sbr. Outlook. Þetta hefur áhrif á tölvupóstsamskipti við stofnanir Seltjarnarnesbæjar. Ef erindi eru mjög áríðandi þá er alltaf hægt að hringja beint í viðkomandi starfstöðvar á opnunartíma þeirra. Finna má símanúmer hér á vef bæjarins.
06.11.2026
Bæjarstjórnarfundur 11. nóvember 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1037. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 11. nóvember 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 5.
06.11.2026
Neyðarlokun á vatni vegna bilunar í Tjarnamýri!
Lokað hefur verið fyrir kalt vatn í Tjarnarmýri að hluta til, verið er að vinna í því að koma vatninu á sem fyrst. Skeyti hafa veið send á íbúa sem að verða vatnlausir og send verður út tilkynning um leið og fleiri upplýsingar liggja fyrir. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
Búið er að hleypa vatni aftur á (12:02)
02.11.2026
Lögregludróni sem eykur fyrsta viðbragð í skoðun á Seltjarnarnesi
Fimmtudaginn 5. nóvember kl. 16-17 á lóð Valhúsaskóla mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að sýna ómannað flygildi sem í skoðun er að sett verði upp á Seltjarnarnesi til að auka fyrsta viðbragð lögreglunnar.
28.10.2026
Lokun á heitu vatni 29.10.2026
Íbúar á Nesvegi vinsamlegast athugið! fimmtudaginn 29. október verður lokað fyrir heita vatnið frá klukkan 10:00 til 11:00 vegna viðgerða (sjá mynd með frétt). Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, Send voru sms skilaboð til þeirra sem að verður lokað fyrir vatnið hjá ef að þér bárust ekki skilaboð og ert án heits vatns sendu email með nafni, símanúmeri og heimilisfangi á póstinn hitaveita@seltjarnarnes.is Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
27.10.2026
28.-30. okt.: Lokun á gönguleið við Sólbrekku við Suðurströnd
Vegna framkvæmda vegna lagningar rafmagnsstrengs við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni meðfram Sólbrekku við Suðurströnd lokað frá klukkan 9:00, miðvikudaginn 28. ágúst til kl. 16:00 föstudaginn 30. ágúst klukkan 16.00. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
27.10.2026
28.-30. okt.: Tímabundin lokun gönguleiðar við Nesveg
Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni vestan megin við Nesveg til móts við Eiðistorg lokuð frá kl. 12:00 þann 28/10 - 17:00 þann 30/10. Lokunin hefur ekki áhrif á ferðir almenningsvagna. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
26.10.2026
Gissur Páll og Árni Heiðar á Eiðistorgi 30. okt. kl. 12:00
Raddir rafmagna Eiðistorgi: Árni Heiðar og Gissur Páll gestum og gangandi í ferðalag á föstudag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins - allt innan veggja Eiðistorgs! Viðburðurinn er í tilefni Óperudaga og haldinn í samstarfi við Seltjarnarnesbæ.