Sævar segir okkur hvað er svona merkilegt við Sólmyrkvann á Seltjarnarnesi sem gengur yfir þann 12. ágúst. Fræðsluerindi á bókasafninu kl. 16:30 mánudaginn 10. ágúst nk.
ALMYRKVI Á SÓLU miðvikudaginn 12. ágúst 2026
Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 upplifa Íslendingar eina allra fegurstu sýningu náttúrunnar þegar Almyrkvi á sólu gengur yfir vestanvert landið og verður m.a. sýnilegur hér á Seltjarnarnesi hvað lengst af öllu höfuðborgarsvæðinu. Af þessu tilefni fáum við engan annan en Stjörnu-Sævar (Sævar Helga Bragason) til okkar á bókasafnið, mánudaginn 10. ágúst kl. 16:30 en hann ætlar að fræða alla áhugasama um Sólmyrkvann á Seltjarnarnesi.
Almyrkvar á sólu laða ekki aðeins að fjölda ferðamanna, heldur vekja líka sérstaklega mikinn áhuga heimafólks. Sævar mun fjalla um sólmyrkva almennt, hvar mögulega er best að vera stóra daginn og hvað þarf til að fylgjast með sólmyrkvum á öruggan hátt auk þess sem enginn er betri að svara spurningum en Sævar.
Við hvetjum alla áhugasama á öllum aldri að nýta tækifærið til að fræðast áður en að þessi einstaki atburður í sögunni gengur í garð. Fræðsluerindi Sævars verður haldið inni í Gallerí Gróttu á bókasafninu. Verið velkomin :)
FB viðburður: https://fb.me/e/8gjEiSVYG
Athugið!
Almyrkvinn verður hvað lengst sýnilegur á Seltjarnarnesi af öllu höfuðborgarsvæðinu og því forréttindi að geta fylgst með honum hér. Á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar má finna allar helstu upplýsingar um Almyrkvann á Seltjarnarnesi: https://www.seltjarnarnes.is/.../almyrkvi-a-solu-12-agust...