Fara í efni

Bæjarstjórn Seltjarnarness 2026-2030

Nýkjörin bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hefur nú í tvígang komið saman til fundar eftir að hún tók við nú í júní. Kosið hefur verið í embætti forseta bæjarstjórnar, skipað í allar nefndir og ráð sem og hefur ráðning bæjarstjóra verið staðfest.
Bæjarstjórn Seltjarnarness 2026-2030. Fv. Björn Jóhannesson, Þór Sigurgeirsson, Elísabet Einarsdótti…
Bæjarstjórn Seltjarnarness 2026-2030. Fv. Björn Jóhannesson, Þór Sigurgeirsson, Elísabet Einarsdóttir, Kristinn Ólafsson, Magnús Benediktsson, Sigurþóra Bergsdóttir og Skafti Harðarson.
Miðvikudaginn 10. júní kom ný bæjarstjórn saman til fundar í fyrsta sinn eftir kosningar og svo aftur miðvikudaginn 24. júní. Á fyrsta fundi var m.a. kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, skipað í nefndir og ráð sem og nýr bæjarstjóri kjörinn. 
 
Sigurþóra Bergsdóttir setti fundinn sem aldursforseti með lengsta setu í bæjarstjórn og bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýkjörinnar bæjarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og óskaði nýjum aðilum til hamingju með kjörið og færði fyrrum bæjarfulltrúum þakkir fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins.
 
Magnús Benediktsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar og tók við fundarstjórn að því loknu.
 
Sjá má skipan allra fulltrúa í nefndir og ráð bæjarins í fundargerð 1.028. fundar bæjarstjórnar og í fundargerð 1.029. fundar.
 
Þór Sigurgeirsson oddviti Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi var svo kjörinn nýr bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar fyrir kjörtímabilið 2026 - 2030 og ráðning hans staðfest á fundi 1.029. bæjarstjórnar þann 24. júní sl. 
 
Nýrri bæjarstjórn og öllum fulltrúum í nefndum og ráðum bæjarins er óskað velfarnaðar í störfum sínum fyrir Seltjarnanesbæ og fyrir bæjarbúa alla.
 

Ráðning bæjarstjóra staðfest með ráðningarsamningi. Fv. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Elísabet Einarsdóttir formaður bæjarráðs Seltjarnarnesbæjar. 

 

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?