Fara í efni

Bæjarstjórn samþykkir stækkun á friðlandi Gróttu og Seltjarnar

Tillaga að nýrri afmörkun friðlandsins og nýjum friðlýsingarskilmálum var tekin til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar sl. þar sem tillagan var samþykkt með 6 atkvæðum á móti 1 atkvæði bæjarstjóra.

Endurskoðun á friðlýsingarskilmálum Gróttu frá 1984 hefur staðið yfir með hléum frá árinu 2019 er stofnaður var starfshópur undir stjórn Umhverfisstofnunar (nú Náttúruverndarstofnun). 

Þann 23. apríl 2025 samþykkti bæjarstjórn beiðni Umhverfisnefndar frá 331. fundi hennar um að tillaga að nýrri afmörkun friðlandsins við Gróttu og tillaga að nýjum friðlýsingarskilmálum fyrir Gróttu og Seltjörn færu í kynningarferli á vegum Náttúruverndarstofnunar í samræmi við lög um náttúruvernd nr. 60/2013. Starfshópur vann á haustmánuðum úr umsögnum sem bárust í kynningarferlinu. Formleg tillaga um stækkun friðlandsins og endurskoðun friðlýsingarskilmálanna var lögð fyrir bæjarstjórn í desember og janúar en afgreiðslu frestað og ákveðið að halda kynningarfund fyrir íbúa í lok janúar. Íbúafundurinn var fjölsóttur og skoðanir um stækkun friðlandsins mjög skiptar á meðal íbúa.

Tillaga að stækkun að nýrri afmörkun friðlandsins við Gróttu og tillaga að nýjum friðslýsingarskilmálum Gróttu og Seltjarnar var svo tekin til afgreiðslu á 1020. fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar sl. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna samþykkt með 6 atkvæðum gegn 1 atkvæði en Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri hafnaði stækkun friðlandsins. Í fundargerð bæjarstjórnar má sjá sameiginlega bókun bæjarfulltrúanna sex og bókun bæjarstjóra vegna málsins. 

Bæjarstjórn vísaði málinu í lögbundinn farveg sem felur í sér að friðlýsingarferlið heldur nú áfram og endar með staðfestingu Umhverfis- og auðlindaráðherra. 

Teikningin sýnir ný mörk friðlands Gróttu og Seltjarnar sem nú hafa verið samþykkt:


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?