28.10.2026
Lokun á heitu vatni 29.10.2026
Íbúar á Nesvegi vinsamlegast athugið! fimmtudaginn 29. október verður lokað fyrir heita vatnið frá klukkan 10:00 til 11:00 vegna viðgerða (sjá mynd með frétt). Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, Send voru sms skilaboð til þeirra sem að verður lokað fyrir vatnið hjá ef að þér bárust ekki skilaboð og ert án heits vatns sendu email með nafni, símanúmeri og heimilisfangi á póstinn hitaveita@seltjarnarnes.is Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
27.10.2026
28.-30. okt.: Lokun á gönguleið við Sólbrekku við Suðurströnd
Vegna framkvæmda vegna lagningar rafmagnsstrengs við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni meðfram Sólbrekku við Suðurströnd lokað frá klukkan 9:00, miðvikudaginn 28. ágúst til kl. 16:00 föstudaginn 30. ágúst klukkan 16.00. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
27.10.2026
28.-30. okt.: Tímabundin lokun gönguleiðar við Nesveg
Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni vestan megin við Nesveg til móts við Eiðistorg lokuð frá kl. 12:00 þann 28/10 - 17:00 þann 30/10. Lokunin hefur ekki áhrif á ferðir almenningsvagna. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
26.10.2026
Gissur Páll og Árni Heiðar á Eiðistorgi 30. okt. kl. 12:00
Raddir rafmagna Eiðistorgi: Árni Heiðar og Gissur Páll gestum og gangandi í ferðalag á föstudag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins - allt innan veggja Eiðistorgs! Viðburðurinn er í tilefni Óperudaga og haldinn í samstarfi við Seltjarnarnesbæ.
26.10.2026
Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2027 Opið fyrir umsóknir og tilnefningar
Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum og/eða tilnefningum um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2027.
23.10.2026
Bæjarstjórnarfundur 28. október 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1036. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 28. október 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 5.
09.10.2026
Bæjarstjórnarfundur 14. október 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1035. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 14. október 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 5.
06.10.2026
Lokun á stæði við leikskóla vegna steypuvinnu miðvikudaginn 7. október
Vegna steypuvinnu við nýjan leikskóla má búast við umferðartöfum á Suðurströnd vegna umferðar steypubíla inn á sem bílastæðið við leikskólana Sólbrekku og Mánabrekku miðvikudaginn 7. október. Verður hálfu stæðinu lokað og stendur lokunin frá 8 til 16.
05.10.2026
Lokun á vatni Selbraut 06/10/2026
Íbúar á Selbraut vinsamlegast athugið!
þriðjudaginn 6. október verður lokað fyrir vatnið frá klukkan 9 og fram eftir degi vegna viðgerða (sjá mynd með frétt).
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, Send voru sms skilaboð til þeirra sem að verður lokað fyrir vatnið hjá ef að þér bárust ekki skilaboð og ert án heits vatns sendu email með nafni, símanúmeri og heimilisfangi á póstinn postur@seltjarnarnes.is Seltjarnarnesbær S: 5959100
03.10.2026
Neyðarlokun á vatni vegna bilunar á Selbraut!
Lokað hefur verið fyrir vatnið á stórum hluta Selbrautar, verið er að vinna í því að koma vatninu á sem fyrst. Skeyti hafa veið send á íbúa sem að verða vatnlausir og send verður út tilkynning um leið og fleiri upplýsingar liggja fyrir.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda
Hitaveita Seltjarnarness
S: 5959100