26.02.2026
Lokun á heitu vatni 02.03.2026
Íbúar vinsamlegast athugið! mánudaginn 2. mars verður lokað fyrir heita vatnið á neströð og hluta Nesbala (sjá mynd með frétt) frá klukkan 10 og fram eftir degi vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,Send voru sms skilaboð til þeirra sem að verður lokað fyrir vatnið hjá ef að þér bárust ekki skilaboð og ert án heits vatns sendu email með nafni, símanúmeri og heimilisfangi á póstinn hitaveitupostur@seltjarnarnes.is Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
24.02.2026
Nýtt umsóknarferli vegna breytinga á sorpílátum
Íbúar geta nú óskað eftir breytingum á fyrirkomulagi sorpíláta við heimili sitt með því að fylla út umsókn á Mínar síður á heimasíðu bæjarins.
23.02.2026
Neyðarlokun á heitu vatni við Sævargarða
Neyðarlokun á heitu vatni við Sævargarða, lekinn er fundinn, unnið er að viðgerð. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
20.02.2026
Bæjarstjórnarfundur 25. febrúar 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1021. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 25. febrúar 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
20.02.2026
Afleiðingar heita vatnsleysis í gærkvöldi
Í gær varð óhapp sem að orsakaði að allt Seltjarnarnesið varð hitavatnslaust í rúma klukkustund. Þegar svona stórt kerfi missir þrýsting nær alltaf eitthvað af uppsöfnuðum meðburði, sem liggur í rörum, að ýfast upp og fer af stað. Meðburðurinn getur endað í síum hjá íbúum.
19.02.2026
Heita vatnslaust á öllu Seltjarnarnesi
Vegna rafmagnsbilunar er heita vatnslaust á öllu Nesinu en unnið er að viðgerð og reiknað með að heita vatnið komist aftur á fyrr en síðar.
19.02.2026
Hættumat skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins til kynningar
Veðurstofa Íslands hefur unnið hættumat fyrir Bláfjöll og Skálafell sem lagt hefur verið fyrir SSH og gefst íbúum nú jafnframt kostur á að kynna sér drögin.
14.02.2026
Innritun barna í Leikskóla Seltjarnarness skólaárið 2026-2027
Umsóknarfrestur um leikskóladvöl barna skólaárið 2026-2027 er til og með 28. febrúar nk. í gegnum mínar síður á vef bæjarins.
14.02.2026
Innritun barna í Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness skólaárið 2026-2027
Umsóknarfrestur um leikskóladvöl barna skólaárið 2026-2027 er til og með 28. febrúar nk. í gegnum mínar síður á heimasíðunni.
13.02.2026
Nýtt fyrirkomulag í leikskólum á Seltjarnarnesi tekur gildi 1. apríl
Seltjarnarnesbær mun innleiða nýtt starfs- og námsumhverfi í leikskólum bæjarins frá 1. apríl nk. í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar í desember síðastliðnum. Ný gjaldskrá mun taka gildi jafnhliða breytingunum.