Fara í efni

Fréttasafn

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Sólmyrkvagleraugu í boði fyrir börn á Seltjarnarnesi
31.07.2026

Sólmyrkvagleraugu í boði fyrir börn á Seltjarnarnesi

Á bókasafninu má nálgast örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu sem Seltjarnarnesbær ætlar að gefa leik- og grunnskólabörnum með lögheimili á Seltjarnarnesi til að þau geti upplifað þann einstaka atburð sem almyrkvinn er.
Forsíðumynd: Sævar Helgi Bragason
30.07.2026

Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 á Seltjarnarnesi

Seltirningar eru í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð hér heima á Nesinu því miðvikudaginn 12. ágúst nk. almyrkvi á sólu verður sýnilegur hér í allt að 1,08 mínútu. Sólmyrkvaferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir frá kl. 16:47 til 18:47.
Lokun á Suðurströnd þann 30. júlí frá kl. 07-13.
29.07.2026

Lokun á Suðurströnd þann 30. júlí frá kl. 07-13.

Vegna malbiksviðgerðar við leikskólann þarf að loka hluta af Suðurströnd, fimmtudaginn 30. júlí frá kl. 07-13. Hjáleið verður framhjá sundlaug og heilsugæslu og um Kirkjubraut og Nesveg. Áætlanir Strætó gætu raskast og búast má við töfum af þessum orsökum. Fólk er beðið um að sýna þessu skilning.
Biðskýli við Nesveg fjarlægt tímabundið
28.07.2026

Biðskýli við Nesveg fjarlægt tímabundið

Vegna framkvæmda við lóðarvegg fyrir nýja leikskólann á horni Nesvegar og Suðurstrandar er óhjákvæmilegt annað en að taka niður biðskýli sem stendur við Nesveg andspænis Eiðistorgi. Skýlið fer niður þann 5. ágúst og verður sett upp aftur um leið og veggurinn hefur risið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki um það bil sex vikur og að strætisvagnar stoppi á sama stað og venjulega.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026
27.07.2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026

Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
Starfsfólk í Skjólið Frístund óskast - hlutastörf
27.07.2026

Starfsfólk í Skjólið Frístund óskast - hlutastörf

Frístundaheimilið Skjólið óskar eftir starfsfólki, 18 ára og eldri. Um er að ræða hlustastarf með börnum að skóla loknum, tvo til fimm eftirmiðdaga í viku (frá kl. 13:00-16:30). Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk.
15.07.2026

Lokun á Suðurströnd til austurs 20. - 24. júlí

Vegna tenginga lagna við nýjan leikskóla verður Suðurströnd einstefna til vesturs frá Nesvegi dagana 20. - 24. júlí, mánudag til föstudags. Akrein Suðurstrandar til austurs verður lokuð þessa daga en stefnt er að hafa opið til vesturs allan framkvæmdatímann. Vegfarendum er bent á hjáleið upp hjá heilsugæslu og um Kirkjubraut. Áætlanir Strætó ættu ekki að raskast en búast má við einhverjum töfum af þessum orsökum. Hjáleiðir verða merktar en fólk er beðið að sýna þessu skilning.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfestir stækkun friðlandsins við G…
02.07.2026

Ráðherra staðfestir stækkun friðlandsins við Gróttu

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði þann 1. júlí nýja friðlýsingaskilmála friðlandsins við Gróttu.
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?