30.06.2026
Garðsláttur á Seltjarnarnesi sumarið 2026
Fjölbreytt fyrirkomulag þetta sumarið og þátttaka í verkefninu "Viljandi villt" í samstarfi við fleiri sveitarfélög á landinu.
26.06.2026
Bæjarstjórnarfundur 1. júlí 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1030. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 1. júlí 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
25.06.2026
Bæjarstjórn Seltjarnarness 2026-2030
Nýkjörin bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hefur nú í tvígang komið saman til fundar eftir að hún tók við nú í júní. Kosið hefur verið í embætti forseta bæjarstjórnar, skipað í allar nefndir og ráð sem og hefur ráðning bæjarstjóra verið staðfest.
19.06.2026
Bæjarstjórnarfundur 24. júní 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1029. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 24. júní 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
19.06.2026
Lokun á heitu vatni á öllu Seltjarnarnesi 25. júní 2026
Seltirningar vinsamlegast athugið! Á morgun fimmtudaginn 25. júní verður lokað fyrir heita vatnið á öllu Seltjarnarnesi frá klukkan 22:00 til 05:00 þann 26. júní vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athugið að send eru sms skilaboð um lokanir Veitna á Seltjarnarnesi til upplýsinga til þeirra íbúa sem eru með skráð gsm símanúmer tengt sínum húseignum á Seltjarnarnesi. Ef að ekki bárust skilaboð þá er viðkomandi húseigandi ekki með skráð símanúmer hjá okkur. Ávallt má senda beiðni um að fara á listann með því að senda tölvupóst með nafni, heimilisfangi og símanúmeri á postur@seltjarnarnes.is einnig má hringja í þjónustuver Seltjarnarnesbæjar í síma: 5959100.
17.06.2026
Gleðilegan þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní 2026
Seltjarnarnesbær óskar bæjarbúum gleðilegs þjóðhátíðardags og býður öllum að njóta hátíðardagskrár á Seltjarnarnesi.
10.06.2026
17. júní á Seltjarnarnesi hátíðardagskrá frá kl. 10-15
Skrúðganga og fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Frítt í alla skemmtun og leiktæki. Allir velkomnir á 17. júní 2026 á Seltjarnarnesi.
05.06.2026
Bæjarstjórnarfundur 10. júní 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1028. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 10. júní 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
02.06.2026
Lokun á vatni Látraströnd 04/06/2026
Íbúar á Látraströnd vinsamlegast athugið!
fimmtudaginn 04. júní verður lokað fyrir vatnið frá klukkan 10 og fram eftir degi vegna viðgerða (sjá mynd með frétt).
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, Send voru sms skilaboð til þeirra sem að verður lokað fyrir vatnið hjá ef að þér bárust ekki skilaboð og ert án vatns sendu email með nafni, símanúmeri og heimilisfangi á póstinn postur@seltjarnarnes.is Seltjarnarnesbær S: 5959100
Seltjarnarnesbær
S: 5959100