
30.05.2025
Tjón á umferðarljósum
Óhapp varð við gatnamótin á Suðurströnd og Nesvegi þegar að flutningabíll rakst utan í ein gönguljósin og mun Vegagerðin annast viðgerðir á staurnum.. Umferðarljósin virka öll þrátt fyrir óhappið og það heyrist hljóðmerki í gangbrautarljósinu þó að rauði og græni "kallinn" sjáist ekki. Hvetjum íbúa og þá ekki síst unga vegfarendur til að fara varlega.

26.05.2025
Malbikun á göngustígunum
Í síðustu viku var byrjað að malbika yfir skemmdirnar í strandstígnum eftir óveðrið í mars og sér því loks bráðum fyrir endann á viðgerðunum sem hafa staðið yfir síðan óveðrið skall á með hárri sjávarstöðu og mikilli ölduhæð.

23.05.2025
Bæjarstjórnarfundur 28. maí 2025 dagskrá
Boðað hefur verið til 1007. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 28. maí 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.

16.05.2025
Gámar fyrir garðúrgang
Gámar fyrir garðúrgang verða aðgengilegir til 28. maí. Staðsetning þeirra er við smábátahöfnina á Suðurströnd og við Norðurströnd til móts við Lindarbraut.

15.05.2025
Breytingar á opnunartíma Bókasafns Seltjarnarness
Þann 1. júní nk. breytist opnunartími bókasafnsins þegar árleg sumarlokun á laugardögum hefst auk þess sem að safnið mun framvegis loka kl. 18.00 mánudaga til fimmtudaga.

15.05.2025
Vorlokun Sundlaugar Seltjarnarness 19.-23. maí
Árleg vorlokun sundlaugarinnar verður dagana 19.-23. maí en þá fara fram árleg þrif og viðhaldsaðgerðir. Sundlaugin opnar aftur kl. 8.00 laugardaginn 24. maí nk.

15.05.2025
Viðgerð á stofnlögn vatnsveitu 20. maí
Þriðjudaginn 20. maí verður ferið í viðgerð á stofnlögn kalda vatns Seltjarnarnesbæjar frá klukkan 16:00 og fram eftir degi. Það gætu orðið raskanir á vatnsflutningi á meðan á viðgerð stendur. Mælum með því að setja vatn á flöskur.

14.05.2025
Skráning hafin á sumarnámskeið Gróttu
Allar upplýsingar um fjölbreytt sumarnámskeið og skráningin sjálf fer fram í gegnum Abler.

12.05.2025
Elín Margrét ráðin aðstoðarleikskólastjóri
Elín Margrét Rafnsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri í Leikskóla Seltjarnarness. Hún er mörgum kunnug enda starfað á leikskólanum frá 2012 og með góða innsýn í uppbyggingu leikskólans, starfshætti og skipulag.

09.05.2025
Bæjarstjórnarfundur 14. maí 2025 dagskrá
Boðað hefur verið til 1006. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 14. maí 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.

06.05.2025
Lokun á heitu vatni 7/5/2025
Íbúar vinsamlegast athugið!
Miðvikudaginn 7. maí verður lokað fyrir heita vatnið á hluta Suðurstrandar, Selbrautar, Sólbrautar, Skerjabrautar, Tjarnastígs, Tjarnabóls, Lambastaðavegs og Nesvegs frá klukkan 15 og fram eftir degi vegna viðgerða.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda
Hitaveita Seltjarnarness
S: 5959100