10.03.2026
Innritun í 1. bekk Mýrarhúsaskóla er hafin á island.is
Opnað hefur verið fyrir innritun barna, fædd árið 2020 sem eiga að hefja skólagöngu í 1. bekk Mýrarhúsaskóla haustið 2026. Innritun fyrir skólaárið 2026-2027 stendur yfir til 31. mars nk.
09.03.2026
Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 – Samvinna í þágu barna
Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum. Fölbreytt vinna fer fram í hverju sveitarfélagi fyrir sig m.a. hér á Seltjarnarnesi.
09.03.2026
88% Seltirninga ánægðir að búa á Seltjarnarnesi
Samkvæmt þjónustukönnun Gallup segjast 88% íbúa Seltjarnarness vera ánægð með sveitarfélagið sem stað til að búa á. Mest er ánægjan með aðstöðu til íþróttaiðkunar og gæði umhverfis í nágrenni heimila íbúa.
06.03.2026
Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2026
Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri var í gær útnefndur Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2026 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness.
06.03.2026
Bæjarstjórnarfundur 11. mars 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1022. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 11. mars 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
26.02.2026
Lokun á heitu vatni 02.03.2026
Íbúar vinsamlegast athugið! mánudaginn 2. mars verður lokað fyrir heita vatnið á neströð og hluta Nesbala (sjá mynd með frétt) frá klukkan 10 og fram eftir degi vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,Send voru sms skilaboð til þeirra sem að verður lokað fyrir vatnið hjá ef að þér bárust ekki skilaboð og ert án heits vatns sendu email með nafni, símanúmeri og heimilisfangi á póstinn hitaveitupostur@seltjarnarnes.is Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
24.02.2026
Nýtt umsóknarferli vegna breytinga á sorpílátum
Íbúar geta nú óskað eftir breytingum á fyrirkomulagi sorpíláta við heimili sitt með því að fylla út umsókn á Mínar síður á heimasíðu bæjarins.
23.02.2026
Neyðarlokun á heitu vatni við Sævargarða
Neyðarlokun á heitu vatni við Sævargarða, lekinn er fundinn, unnið er að viðgerð. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
20.02.2026
Bæjarstjórnarfundur 25. febrúar 2026 dagskrá
Boðað hefur verið til 1021. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 25. febrúar 2026 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
20.02.2026
Afleiðingar heita vatnsleysis í gærkvöldi
Í gær varð óhapp sem að orsakaði að allt Seltjarnarnesið varð hitavatnslaust í rúma klukkustund. Þegar svona stórt kerfi missir þrýsting nær alltaf eitthvað af uppsöfnuðum meðburði, sem liggur í rörum, að ýfast upp og fer af stað. Meðburðurinn getur endað í síum hjá íbúum.